- Advertisement -

Hallarekstur á heimilum láglaunafólks

Kjarafréttir Eflingar:

Heimili láglauna barnafjölskyldna ná ekki endum saman jafnvel þó þau bæti við sig umtalsverðri aukavinnu. Óvenju lágur húsnæðiskostnaður, með lakari gæðum, þarf einnig að koma til ef forða á hallarekstri. Þetta sýnir úttekt á afkomu láglaunafólks sem greinir helstu afkomustærðir í lífi þess: Laun, lífeyrisiðgjöld, skatta, barna- og húsnæðisbætur og framfærslukostnað.

Einstæða foreldra á lágmarkslaunum með eitt barn undir 7 ára aldri vantar um 83.000 kr. á mánuði til að ná endum saman í janúar 2022. Með því að hækka tekjurnar með aukavinnu úr 368.000 kr. á mánuði í 450.000 krónur lækkar hallinn einungis í um 33.000 krónur. Óvenju ódýrt húsnæði þarf til viðbótar til að forðast halla.

Hjón eða sambúðarfólk með tvö ung börn á tvennum lágmarkslaunum (736.000 kr.) er með halla upp á 89.360 kr. á mánuði, þegar búið er að draga iðgjöld til lífeyrissjóða og tekjuskatt frá tekjum og bæta við barna- og húsnæðisbótum. Ef þau bæta við sig umtalsverðri aukavinnu (2×21,5 klst. á mán.) þá lækkar hallinn niður í tæplega 10.000 krónur á mánuði. Meira þarf því til að ná endum saman.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Niðurstaða: Lægstu laun eru of lág, af þeim er tekinn alltof hár tekjuskattur og barna- og húsnæðisbætur eru of lágar.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: