- Advertisement -

Hræsni Katrínar Jakobsdóttur

Vilhjálmur Birgisson skrifar: Ég skora á alla að hlusta á þessa ræðu og deila henni, en ræðuna flutti Katrín Jakobsdóttir þingmaður Vinstri grænna og núverandi forsætisráðherra árið 2015 þegar kjarasamningar verkafólks voru lausir.

En í þessari stuttu ræðu segir hún meðal annars: „Laun verða að vera þannig að hægt sé að lifa af þeim,“ sagði Katrín Jakobsdóttir í tilfinningaþrunginni ræðu árið 2015.

Hvar er Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra núna í ljósi þess að núna byggist krafa okkar akkúrat á því að lágmarkslaun dugi fyrir framfærsluviðmiðum?

Þú gætir haft áhuga á þessum

Nei, nú er umhyggja hennar fyrir lágtekjufólk gleymd og tröllum gefin og í staðin leyfir hún fjármálaráðherra að hóta verkafólki daginn út og inn í aðdraganda kjarasamninga. Hræsni.is!


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: