- Advertisement -

Hvað er komið fyrir Ríkisútvarpið?

„Til hvers er Kastljós að endurtaka þetta? Afhverju er verið að hefja heimskuna og frekjuna upp á stall?“

Gunnar SMári Egilsson.

Umræðan/Facebook: Gunnar Smári skrifaði:

„Trump tekur yfir Kastljósið. Rannsóknum í lýðheilsufræðum stillt upp sem jafngildum og gróðafíkn einhvers sprúttsala. Hvað er komið fyrir Ríkisútvarpið?

Miðað við bandarískar rannsóknar kaupa um 20% fjöldans um 85% af magninu. Áfengismarkaðurinn er því fyrst og fremst vímuefnasala til sjúklinga og fólks í áhættuneyslu. Sala til hófdrykkjufólks er eðli málsins samkvæmt sáralítil og stæði ekki undir framleiðslu, dreifingu og sölu. Til er aumingjans fólk sem vill græða á þessum markaði og ekkert við því að gera, fólk er allskonar innréttað. En hvers vegna í ósköpunum er Ríkisútvarpið að búa til þátt svo einn úr þessari hjörð geti flaggað heimsku sinni, frekju og yfirgangi? Um daginn greip Snorri Másson fram í fyrir konu sem vissi sínu viti til að koma vanþekkingu sinni að. Til hvers er Kastljós að endurtaka þetta? Afhverju er verið að hefja heimskuna og frekjuna upp á stall?“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: