- Advertisement -

Katrín þvingi Bjarna til samninga við hjúkrunarfræðinga

Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs og Bjarna Ben setti lög sem bönnuðu verkfallið.

Jón Þór Ólafsson skrifaði:

Hjúkrunarfræðingar samþykktu að fara í verkfall 2015, og ríkisstjórn Sigmundar Davíðs og Bjarna Ben setti lög sem bönnuðu verkfallið.

Landlæknir varaði við því að lög á verkfallið væri skammtímalausn. – Eftir fimm ár, án þess að fá samning sem þau geta samþykkt frá fjármálaráðherra, sjá hjúkrunarfræðingar sig tilneydda til að fara í verkfall, og það eftir að hafa verið í framlínunni í heimsfaraldri fyrir okkur öll.

Hjúkrunarfræðingar vöruðu við því að margir þeirra myndu hætta  ef lög á verkfallið væri samþykkt. – yfir 200 hjúkrunarfræðingar sögðu upp.

Hér er það sem Katrín Jakobsdóttir sagði þá í þingræðu þegar lögin á verkfallið voru rædd á Alþingi.

Það er kominn tími til að Katrín Jakobsdóttir lýsi því yfir að hennar ríkisstjórn muni ekki setja lög á yfirlýst verkfall hjúkrunarfræðinga 22. júní, og þvinga þannig Bjarna Benediktsson til að semja við þá áður en til verkfallsins kemur.

Hún getur allavega gert það.