- Advertisement -

Kveikur á lokametrunum?

Markaðurinn, fylgiblað Fréttablaðsins, segir Kveik, nýjan fréttaskýringaþátt vera á lokametrunum og þátturinn verði brátt hluti af Kastljósi. Eitt virðist víst að áhorf á þætti Kveiks er undir væntingum og þátturinn nær ekki lengur að vera meðal vinsælli þátta Ríkissjónvarpsins.

Markaðurinn bendir á að er Kastljósið nú án stjórnenda; „…og spyrja margir sig hvers vegna fólk þar á bæ ákvað að fórna einu af verðmætari vörumerkjum RÚV fyrir nýja þáttinn Kveik. Hann er jú í umsjón fyrrverandi Kastljóssfólks sem tók meira að segja yfir Facebook-síðu þáttarins. Þau hefðu kannski betur sleppt því enda telja margir einungis tímaspursmál hvenær tilkynnt verður um sameiningu þáttanna tveggja undir nafni Kastljóss.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: