- Advertisement -

Peningar notaðir í eitthvað allt annað

„Á síðustu árum hef­ur ríkið tekið 15 millj­arða af þessu gjaldi og sett í önn­ur verk­efni en að verja byggðir fyr­ir snjó og aur­flóðum.“

Sigmar Guðmundsson.
https://www.midjan.is/bjarni-nanast-taemdi-varasjodinn/

Ríkið á til að setja auka álögur á okkur. Þá oftast undir yfirskini að peninga eigi að nota í aðkallandi verkefni. Varnargarðurinn við Svartsengi er nýjasta dæmið. Í nýlegri frétt Miðjunnar sagði frá hvernig ráðuneyti Bjarna Benediktssonar hafði misfarið með peninga sem heyrðu undir allt annað en þeir voru notaðir til.

Auðvitað er þetta grafalvarlegt. Að ráðherrar fari frjálsum höndum um peninga sem eiga að fara áður ákveðin verkefni. Þetta er í raun galið.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, skrifar grein í Mogga dagsins. Hér er síðasti hluti greinarinnar:

„Ríkið inn­heimti af skatt­greiðend­um í fyrra rúma 3,8 millj­arða í of­an­flóðasjóð, sem nýtt­ur er í varn­ir gegn of­an­flóðum. Sjóður­inn fékk hins veg­ar bara 2,7 millj­arða í sinn hlut til að sinna sín­um vörn­um. Ríkið notaði rúm­an millj­arð af gjald­inu í annað. Á síðustu árum hef­ur ríkið tekið 15 millj­arða af þessu gjaldi og sett í önn­ur verk­efni en að verja byggðir fyr­ir snjó og aur­flóðum. Sag­an seg­ir okk­ur því skýrt að ríkið hik­ar ekki við að skatt­leggja fólk og fyr­ir­tæki í því skyni að verja byggðir fyr­ir nátt­úru­ham­förum, en nýt­ir svo stór­an hluta pen­ings­ins í annað. Það er ekki sann­gjarnt gagn­vart fólk­inu sem á að verja.“

Hvað kallast það í mannheimum þegar einhver tekur peninga og notar þá í eitthvað langt frá því sem þeim var ætlað.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: