„Það er gagnrýnivert að ríkisstjórnin telji að elli- eða örorkulífeyrisþegar sem fá 150 til 200 þúsund á mánuði séu með svo háar bætur að þeir eigi ekki að fá hækkun.“
Gylfi Arnbjörnsson, þá forseti ASÍ.
Baksýnisspegillinn: Mikið hefur verið tekist á um hvort öldruðum og öryrkjum beri, eða ekki, að fá bættan skaðan frá árinu 2008, þegar Jóhanna Sigurðardóttir var félagsmálaráðherra og Geir H. Haarde forsætisráðherra breytti rangt og jók á muninn milli lægstu atvinnutekna og ellilauna og örorkubóta.
Gylfi Arrnbjörnsson, þá forseti ASÍ var í viðtali í Fréttablaðinu 13. desember 2008..
„Það er mjög sérstakt að ríkisstjórnin hafi sérstaklega búið til aðgerð sem felur í sér að þessi hópur eigi að bera einhvern sérstakan skatt,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, um ákvörðun ríkisstjórnarinnar um 10 prósenta skerðingu bóta almannatrygginga.
„Okkar gagnrýni beinist ekki að þeim sem fengu.“
Ríkisstjórnin ákvað að undanskilja lágmarkstekjuviðmið frá skerðingunni og segir Gylfi líklegt að um 15 þúsund manns njóti góðs af því. „Ég ætla ekki að rengja Jóhönnu [Sigurðardóttur félagsmálaráðherra] um það en það eru 35 þúsund manns sem lenda í skerðingunni, sem fá ekki hækkunina og sá hópur býr líka við fátækt,“ segir Gylfi. Hann segir um 50 þúsund manns þiggja bætur frá lífeyristryggingakerfinu svo augljóst sé að um æði stóran hluta bótaþega sé að ræða. „Okkar gagnrýni beinist ekki að þeim sem fengu.
Okkar gagnrýni beinist að því að það eru 35 þúsund elli- og örorkulífeyrisþegar sem ekki fá þá hækkun sem þeir áttu rétt á,“ segir Gylfi. Hann segir almannatryggingalöggjöfina gera ráð fyrir verðtryggingu á lífeyri, að þeir sem eru á bótum eigi að fá hækkun sem nemur breytingum verðlags.“ Ákvörðun ríkisstjórnarinnar þýði að í stað þess að lágmarksbætur almannatrygginga hækki í tæplega 178 þúsund krónur á mánuði verði þær ríflega 163 þúsund krónur eða 15 þúsund krónum lægri á mánuði.
„Það er gagnrýnivert að ríkisstjórnin telji að elli- eða örorkulífeyrisþegar sem fá 150 til 200 þúsund á mánuði séu með svo háar bætur að þeir eigi ekki að fá hækkun,“ segir Gylfi.