Líklega er þessi yfirlýsing Snorra það sturlaðasta sem sagt hefur verið í ræðustól Alþingis

Umræðan/Facebook: Gunnar Smári skrifaði:
Yfirlýsing Snorra Mássonar varaformanns Miðflokksins um að fólk utan EES ætti ekki að fá að setjast hér að snertir tæplega 30 þúsund manns sem hér búa, fólk sem Snorri telur óæskilegt og ætti ekki að vera hér. Hér eru, samkvæmt Hagstofu, 19.546 manns með ríkisfang í löndum utan EES. Auk þess hafa 10.365 manns frá löndum utan EES fengið íslenskan ríkisborgararétt undanfarin 35 ár. Snorri var að lýsa því yfir að hann teldi allt þetta fólk óæskilegt, að það hefði slæm áhrif á samfélagið. Þetta á við um 7,7% landsmanna um þrettándi hvern mann. Líklega er þessi yfirlýsing Snorra það sturlaðasta sem sagt hefur verið í ræðustól Alþingis, og hefur þar þó mörg vitleysan verið sögð.