- Advertisement -

Skammarlega lág fjárhagsaðstoð

„Þetta er um 80.000 krónur sem maður er að fá og það dugir auðvitað ekkert.“

Sú upphæð sem fólki í erfiðri fjárhagsstöðu er veitt til fjárhagsaðstoðar af hálfu Reykjavíkurborgar er skammarlega lág. Þetta kom fram í máli Sönnu Magdalenu Mörtudóttur borgarfulltrúa Sósíalistaflokksins í þættinum Annað Ísland í dag en hún var meðal gesta Gunnar Smára Egilssonar. Sanna segir að ekki sé kannað hvort upphæðin dugi til þess að draga fram lífið og gera þurfi gangskör í því að ná til þeirra sem ekki beri sig eftir björginni:

Þetta eru einstaklingar sem eru í mjög viðkvæmri stöðu og það þarf að ná til þeirra sem ekki hafa leitað sér aðstoðar í þessum efnum,“ segir Sanna.

Hlynur Már Vilhjálmsson sem einnig var gestur þáttarins og hefur verið fastur í gildru fátæktar undanfarin ár og þekkir af eigin raun að lifa af slíkri fjárhagsaðstoð og aðspurður um upphæðina segir Hlynur: Þetta er um 80.000 krónur sem maður er að fá og það dugir auðvitað ekkert, ég hef búið hjá foreldrum mínum undanfarin ár.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Hér má hlusta á þáttinn í heild sinni.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: