
Umræðan/Facebook: Vilhjálmur Birgisson, formaður SFS og VLFA skrifaði:
Um leið blasir við að íslenskt launafólk var svikið, því við gerð kjarasamninga árið 2024 lofuðu ríki, sveitarfélög og fyrirtæki í opinberri eigu sem og verslun og þjónusta að halda aftur af gjaldskrár- og verðlagshækkunum. Almennar launahækkanir samkvæmt kjarasamningum eru 3,5%, á meðan gjöld á grunnþjónustu hækka um tugi prósenta. Þetta er ekki jafnvægi, þetta er ekki ábyrg hagstjórn, heldur gjaldagleði sem kyndir undir verðbólgu og bitnar beint á launafólki og heimilum landsins.
„Samkvæmt þessari frétt hafa Veitur hækkað fastagjald hitaveitu um nærri 50% á einu ári, sem er fordæmalaus hækkun á grunnþjónustu sem öll heimili þurfa að greiða óháð notkun. Þetta er skýrt dæmi um gjaldagleði ríkis og sveitarfélaga og fyrirtækja í þeirra eigu, þar sem byrðunum er velt yfir á almenning og það á sama tíma og nánast allur hagnaður Orkuveitu Reykjavíkur er tekinn út í formi arðgreiðslna.
Rétt er líka að minna á að í næstu endurskoðun kjarasamninga er skýrt ákvæði um að 12 mánaða verðbólga megi ekki vera yfir 4,7%, annars opnast heimild til að segja samningum upp næsta haust. Því miður er margt sem bendir til þess að verðbólgan geti farið yfir þetta mark, ekki síst vegna gjaldagleði ríkis og sveitarfélaga og fyrirtækja í þeirra eigu. Ef það gerist verður ekki launafólk sem ber ábyrgðina, heldur þeir sem sviku loforð sín um að halda aftur af gjaldskrár- og verðlagshækkunum og kusu þess í stað að velta kostnaðinum yfir á almenning.“