- Advertisement -

Svandís sýndi á spilin – Íhaldið fær kvíðakast

Birgir Dýrfjörð skrifar:

Íhaldið sem á og stjórnar Sjálfstæðisflokknum og Mogganum glímir nú við skyndilegt kvíðakast.

 Ástæðan eru upplýsingar Svandísar Svafarsdóttur í þætti í útvarpi FM 89,1.  Þátturinn sem er aðgengilegur nú í talvarpi í Samstöðinni og á Midjan.is  heitir synir Egils. 

Honum stjórna bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir.  Langreyndir og minnugir blaðamenn, ritstjórar og útvarpsmenn.      

Bræðurnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári.
Viðtalið var stórmerkilegt, þar skýrir hún frá byltingarkenndum breytingum á stjórnum fiskveiða, og að allar ákvarðanir og gjörningar eigi og munu einkennast af gegnsæi.

Í þætti þeirra Egilssona 17. 9.  er um 50 mínútna  langt og ítarlegt viðtal við Svandísi Svavarsdóttur.  Viðtalið var stórmerkilegt, þar skýrir hún frá byltingarkenndum breytingum á stjórnum fiskveiða, og að allar ákvarðanir og gjörningar eigi og munu einkennast af gegnsæi.

Augljóst er að hugmyndir Svandísar falla að yfirgnæfandi skoðunum almennings.

Þær lúta m.a. að úthlutun veiðiheimilda og daglegu gegnsæi á skráningu þeirra þannig, að ljóst verði hverjir hafi í raun og veru afnotaréttinn að stærstu auðlind þjóðarinnar og í hvaða mæli.  

Þær lúta m.a. að því að tiltekinn kvóti verði boðinn upp og hvernig tekjum af því verður varið. 

Þær lúta m.a. að fiskeldi, náttúruvernd og dýravernd.  Þær beina athygli að þeirri svikamyllu, að útlend skip, fá mikið hærra verð en íslensk,  sem landa þó samskonar afla á sama stað og tíma.

Þessi upptalning hér er aðeins brot af tillögum Svandísar til að draga úr ríkjandi ranglæti. 

Þeim sem vilja kynna sér tillögur Svandísar bendi ég á  slóðina;

https://www.youtube.com/watch?v=VPj3rK_Sc0k  eða á Midjan.is  

Þar er viðtalið við Svandísi og það er vel þess virði að hlusta á það.

Kvíðakastið

Íhaldið sem ræður Sjálfstæðisflokknum veit vel að að hugmyndir Svandísar eru eins og talaðar úr hjarta þorra Íslendinga, ekki hvað síst þeirra 25% sem lengst hafa kosið Sjálfstæðisflokkinn.

Ég hef starfað í félagsmálum í áratugi með flokksbundnu sjálfstæðisfólki.  Það eins og flest fólk vill vera ærlegt, víðsýnt og umburðarlynt. Orðið íhald í neikvæðri merkingu á ekki við um það fólk.

Þetta veit líka íhaldið sem, rekur Sjálfstæðisflokkinn og Moggann, það mun gera allt hvað það getur að stíga niður þingmenn flokksins og eyða þannig gegnsæi og breytingum í meðferð veiðiheimilda. 

Það veit að stór hluti kjósenda Sjálfstæðisflokksins mun styðja af heilum hug tillögur Svandísar um breytingar á kvótakerfinu, – það er kvíðvænlegt. 

En það vita Svandís og VG líka, og þegar þjóðin hefur rifist í nokkra mánuði og stærri og stærri hluti hennar styður hugmyndir VG þá, og einmitt þá er réttur tími fyrir Vinstri-Græn að rjúfa stjórnarsamstarfið og ganga til kosninga, sem snúast þá um breytingar á ranglátu kvótakerfi.

Nýjar sviðsmyndir

Íslendingar hafa í tvígang vakið athygli fyrir víðsýni í jafnrétti kynja. Fyrsta konan, sem var þjóðkjörin forseti í lýðræðisríki er Íslensk. Fyrsta samkynhneigða konan sem varð forsætisráðherra í lýðræðisríki er Íslensk.

Væri ekki eðlilegt framhald af því, að hér kæmi ríkisstjórn með konum í meirihluta.

Manni detta þá í hug nöfn eins og Kristrún Frostadóttir, Katrín Jakobsdóttir, Lilja Alfreðsdóttir og Svandís Svavarsdóttir. 

Er nokkuð að undra að íhaldið sé í kvíðakasti?

                                  Birgir Dýrfjörð, rafvirki.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: