- Advertisement -

„Það er kreppa í Vestmannaeyjum“

Það er þungt í Binna í Vinnslustöðinni. Ekki er langt síðan Vinnslustöðin keypti Þórunni Sveinsdóttir VE og Leo Seafood. Nú hefur starfsfólki Leo Seafood verið sagt upp. Binni ber fyrir sig hækkun veiðigjalda.

„Það var kreppa og kreppuástand hér í Vestmanneyjum. Það er auðvitað það sem mér finnst lang, langlíklegast að fari af stað víða á landsbyggðinni. Það er ekki bjartsýni og ekki kraftur sem fylgir aukinni skattlagningu, heldur þvert á móti. Nú þurfa menn að fara í vörnin, pakka í hana og gera það sem gera þarf. Sem er mjög óþægilegt fyrir samfélögin og fólkið í kring,“ segir Binni í samtali við Vísi.

„Við munum aldrei ná þessum 850 milljónum. Þetta er ekki flókið, þetta endar náttúrulega á fólki, saklausu fólki sem er búið að vinna hjá Leo Seafood í langan tíma og hjá fyrri eigendum þar. Harðduglegu og góðu fólki sem hefur lagt sig allt fram og þetta er hin sorglega niðurstaða.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: