mbl.is náði í fjármálaráðherra.
mbl.is:
„Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra hafnar því að hafa afvegaleitt Alþingi um ástæður starfsloka Harðar Arnarsonar hjá Landsvirkjun. Hann segir ágreininginn snúast um óformlega hádegisverðarfundi stjórnar fyrirtækisins.
Ráðherrann ræddi við blaðamann að loknum ríkisstjórnarfundi í dag. Hann telur ekkert hafa komið fram sem rýri traust hans til stjórnarinnar og sér ekki tilefni til óháðrar rannsóknar að svo stöddu.
Meðal þeirra gagna sem mbl.is hefur undir höndum er trúnaðarpóstur sem Daða var sendur 11. september, áður en Hörður lét af störfum. Þar er gerð grein fyrir alvarlegum ágreiningi milli stjórnar og forstjóra Landsvirkjunar, meðal annars athugasemdum Harðar við stjórnarhætti og samskipti við ráðuneytið.“