- Advertisement -

Ég þekki þennan málaflokk ágætlega

Alþingi:

Hildur Sverrisdóttir Sjálfstæðisflokki spurði Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra:

„Ráðherra segir að hún hafi tilfinningu fyrir því og staðfestu og trú sem ég vil ekki gera lítið úr í hennar huga — en hefur hæstvirtur ráðherra eitthvað bitastæðara í höndunum en bara trú og von þar sem hún geti staðfest að með þessu frumvarpi, þar sem er verið að glæpavæða enn frekar þessa starfsemi, verði þeir þolendur sem eru viðloðandi hana ekki enn jaðarsettari og enn viðkvæmari?“

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Ég ætla nú kannski að leyfa mér að leiðrétta að ég sé að tala bara út frá einhverri trú eða von. Ég þekki þennan málaflokk ágætlega og hef starfað við hann árum saman. Ég fundaði t.d. með Rauðu regnhlífinni. Það er einn hópur fólks í þessum sporum en speglar sannarlega ekki allt það fólk sem starfar við vændi. Ég viðurkenni að hugur minn og minn fókus er ekki síst á þeim sem búa við þær aðstæður að hafa ekki valið sér vændi að starfsvettvangi. Það eru líka til fjölmargar rannsóknir sem benda til þess að yfirgnæfandi meiri hluti þeirra sem eru í vændi sé í þeim sporum.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: