- Advertisement -

Það er órói á Alþingi

…vegna þess að það gat alltaf komið eitthvað uppá í 680 metra hæð eins og Fjarðarheiði er þar sem hún er hæst.

Jón Kristjánsson fyrrverandi ráðherra.

Facebook:

Jón Krisrtjánsson, fyrrum ráðherra skrifaði um samgönguáætlunina, tvo daga í röð. Fín skrif hjá Jóni.

l. Það má með sanni segja að síðustu vikur hafa verið viðburðríkar. Samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar ber það hæst. Ég var með hnút í maganum út af þeim málum og ekki að ástæðulausu. Þegar ráðherrann og ríkisstjórnin sáu að ekki var eining fyrir austan var leikur á borði að fresta gangagerð þar. Ljóst var þó að Fljótagöng eru langt frá því að vera tilbúin til útboðs, og ljóst er að það hefur verið flumbrugangur í öllum undirtbúningi samgönguáætlunar.

Þú gætir haft áhuga á þessum

…vona að það séu ekki allir farnir í Miðflokkinn…

Mér blöskrar umræðan um þessi mál, og mér finnst sá hluti hennar sem snýr að Seyðisfirði til skammar. Það er ljóst að Seyðisfjörður hefur erfiða stöðu í samgöngumálum að því leiti að engin varaleið er til ef ófært er. Talan sem kemur upp í umræðunni er að það sé ófært í 17 daga á ári, en ófærðin er miklu víðtækari. Ég átti starfa minna vegna á árum áður oft leið um Fjarðarheiði síðla kvölds eða fyrripart nætur. Jónas Hallgrímsson vinur minn og samstarfsmaður brýndi alltaf fyrir mér að hringja þegar ég væri kominn yfir, vegna þess að það gat alltaf komið eitthvað uppá í 680 metra hæð eins og Fjarðarheiði er þar sem hún er hæst. Umræðan um að færa Norrænu í Þorlákshöfn eða kaupa alla Seyðfirðinga út úr heimkynnum sínum, eins og heyrist hér fyrir sunnan er ekki til sóma.

Ég er ekki í skapi til þess að skrifa meira í bráð, en kannske verður framhald síðar.

ll. Síðasta innlegg mitt hér vakti nokkra umræðu. Sem sýnir að samgöngumálin eru mönnum ofarlega í huga. Ég þakka þeim sem lásu þetta góðar undirtektir. Ég mun ræða málið við Jörund vin minn þegar hann kemur í sund, og óska honum alls hins besta. Gunnlaugur Sigmundsson spurði um viðhorf framsóknarmanna til þessara mála, en ég verð að viðurkenna að ég á ekki nein einhlít svör við því. Þar eru sjálfsagt ýmis sjónarmið uppi, en ég vona að það séu ekki allir farnir í Miðflokkinn fyrir austan.

Afstaða mín til samgöngumálanna byggist á því að ég hef samúð með Seyðfirðingum. Þeir hafa upplifað mikla erfiðleika og er þar ekki á bætandi. Ég þakka utanríkisráðherranum okkar fyrir að fara austur og halda fund um málið með þeim. það var myndarlega gert.

Ég þakka einnig Kristjönu Mosfeld fyrir góð orð í minn garð.

Það er órói á Alþingi núna, og ég var hissa þegar ég las orð þingforsetans. Ég þekki þá konu ekki að öðru en góðu viðmóti og það hefur áreiðnlega mikið gengið á til þess að koma henni úr jafnvægi. Hún hefður beðist afsökunar og það ber að virða.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: