Það er ekki hægt að tala um fæðuöryggi og stöðu þess á Íslandi án þátttöku bændastéttarinnar.
Ingibjörg Davíðsdóttir Miðflokki.
Þetta er skandall.
„Fyrir nokkru sendi ég fyrirspurn til atvinnuvegaráðherra um þjóðar- og fæðuöryggi. Ég spurði m.a. hvaða viðbragðsáætlanir væru fyrir hendi ef flutningsleiðir til og frá landinu lokuðust og hvaða stjórnvaldsfyrirmæli væru til um lágmarksbirgðir matvæla og aðfanga til matvælaframleiðslu á Íslandi. Svörin voru: Engar og ekkert. Ég spurði einnig um hvernig stjórnvöld ynnu að því að tryggja fæðuöryggi þjóðarinnar í ljósi þess að þjóðaröryggi verður ekki tryggt án fæðuöryggis. Svarið var á þá leið að það væri búið að gera skýrslu og það væri verið að gera fleiri skýrslur og að verið væri að þróa mælitæki. Það voru svörin,“ sagði Ingibjörg Davíðsdóttir á Alþingi í dag.
Atvinnuvegaráðherra Viðreisnar hyggst standa fyrir málþingi um stöðu fæðuöryggis á Íslandi seinna í þessari viku. Þar á að kynna a.m.k. eitthvað af þessum skýrslum og nýtt mælaborð um stöðu og horfur fæðuöryggis á Íslandi. Einnig verður pallborð þar sem spurt verður hvort nauðsynleg seigla samfélagsins sé til staðar. Ég rýndi þátttakendalistann á dagskrá málstofunnar og hverjir væru þar frá frumframleiðendum, bændum. Enginn. Tveggja klukkustunda málþing um fæðuöryggi landsins. Þar eru m.a. fulltrúar samtaka iðnaðar, verslunar, ráðuneyta og háskóla við borðið. Enginn bóndi, enginn fulltrúi bændastéttarinnar. Tveggja tíma málstofa um fæðuöryggi án þátttöku bændastéttarinnar. Þetta er skandall og ég spyr: Hvað gengur atvinnuvegaráðherra Viðreisnar til? Það er ekki hægt að tala um fæðuöryggi og stöðu þess á Íslandi án þátttöku bændastéttarinnar. Þetta lítur þannig út, fyrir mér a.m.k., að atvinnuvegaráðherra Viðreisnar hafi nákvæmlega engan áhuga á að ræða við landbúnaðinn um landbúnaðarmál. Annars hlakka ég til að kynna seinna í dag þingsályktunartillögu mína um fæðuöryggi og innlenda matvælaframleiðslu. Tillagan felur í sér átta aðgerðir sem allar miða að því að stuðla að fæðuöryggi þjóðarinnar og efla innlenda matvælaframleiðslu.“