- Advertisement -

Fimmfalt fleiri af erlendum uppruna á atvinnuleysisskrá heldur en t.d. þeir sem búa fyrir í landinu

Alþingi: Hér er svar Ingu Sæland vegna fyrirspurnar Stefáns Vagns Stefánssonar Framsóknarflokki:

Við erum einmitt ítrekað að fá þær áskoranir í fangið að sjá að við vorum að taka við miklum fjölda af innflytjendum okkar án þess að hafa burði til þess að sinna þeim og koma til móts við þau eins og við hefðum þurft að gera. Fjöldinn var það mikill.

Ég þakka háttvirtum þingmanni Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir þessa góðu fyrirspurn, sem hann beinir nú kannski ekki akkúrat til mín sem mennta- og barnamálaráðherra, en að sjálfsögðu megum við og eigum að hafa áhyggjur af því ef um stórkostlegt og vaxandi atvinnuleysi er að ræða. Sem betur fer er þó, þrátt fyrir lítinn vöxt upp á síðkastið, í raun ekkert sem við þurfum að hafa áhyggjur af. Ég tel að þetta sé tímabundið eftir þær holskeflur sem við höfum gengið í gegnum þar sem fólk hefur verið að missa vinnuna sína í hundraðatali. Það er um 4,8% atvinnuleysi eins og staðan er í dag og eiginlega óvarlegt að Hagstofan birti atvinnuleysistölur upp á 6,5% á meðan Vinnumálastofnun, sem var með allar skráningar, bendir á að það sé í raun 4,8%,“ sagði Inga Sæland á Alþingi.

„Það sem við gripum til, og ég gerði sem félags- og húsnæðismálaráðherra, var að við jukum mjög fjárveitingar til Vinnumálastofnunar til að koma með t.d. snemmtæka íhlutun inn í sjóði sem styðja við þau sem eru atvinnulaus til að reyna að efla þau og aðstoða þau í virkni. Við teljum að það sé alveg gífurlega mikilvægt. Við sáum það t.d. að 50% þeirra sem eru af erlendum uppruna og eru atvinnulausir sögðust telja að þeir væru jafnvel komnir með störf ef þeir hefðu vald á tungumálinu. Við erum einmitt ítrekað að fá þær áskoranir í fangið að sjá að við vorum að taka við miklum fjölda af innflytjendum okkar án þess að hafa burði til þess að sinna þeim og koma til móts við þau eins og við hefðum þurft að gera. Fjöldinn var það mikill. Það birtist líka í þessum tölum að það eru sennilega um fimmfalt fleiri af erlendum uppruna á atvinnuleysisskrá heldur en t.d. þeir sem búa fyrir í landinu, þ.e. Íslendingar. Það eru því risastórar áskoranir og við munum ekki gefa neitt eftir hvað það varðar. Ég bind miklar vonir við þessa snemmtæku íhlutun sem við erum að koma með núna inn í atvinnuleysistryggingakerfið og tel að við munum eiga eftir að uppskera ríkulega og jákvætt í kjölfarið,“ sagði Inga.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: