- Advertisement -

Umtalsverðar skattahækkanir í Bretlandi

„Í fyrra kynnti fjármálaráðherra Breta mestu skattahækkanir þar í landi frá því á tíunda áratugnum og lofaði þá að það myndi ekki gerast aftur. Síðar í dag er búist við verulegum hækkunum á nýjan leik,“ segir í nýrri frétt á ff7.is.

Lesum áfram:

„Almennt gera greinendur í Bretlandi ráð fyrir því að Rachel Reeves fjármálaráðherra muni tilkynna um skattahækkanir í nýjum fjárlögum landsins fyrir á bilinu 20 til 30 milljarða punda, eða um allt að 5 þúsund milljarða króna, að sögn Reuters.

Fyrir ári síðan hækkaði hún skattana um 40 milljarða punda og lofaði þá að það yrði aðeins þá og ekki aftur. Aukinn lánakostnaður hins opinbera og slæmar efnahagsspár gera það að verkum að meira fé þarf til. Reeves segist hafa neyðst til að taka „sanngjarnar og nauðsynlegar ákvarðanir“ sem hún viðurkennir að Bretar séu ósáttir við.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: