„Varla verður það raunin að ráðherra brjóti lög og baki íslenska ríkinu bótaskyldu af ásetningi.“
SFS.
Barátta stórútgerðarinnar gegn auknum strandveiðum er að verða komin á yfirsnúning. Í kaflanum hér á eftir má sjá hugarfarið.
„Við blasir sú staðreynd að atvinnuvegaráðherra hefur ekkert aflamagn til ráðstöfunar og lítið sem ekkert svigrúm innan 5,3% kerfisins til að bregðast við þeirri óhjákvæmilegu aukningu í aflamagni sem strandveiðar munu þurfa í sumar. Því verður að telja það ábyrgðarhluta af hálfu ríkisstjórnarinnar að hafa lofað 48 dögum í strandveiðar, ekki síst þegar fyrir liggur að staðan hafi verið ríkisstjórninni ljós strax í stjórnarmyndunarviðræðunum í desember. Nú getur atvinnuvegaráðherra ekki lengur skirrst við og talað sig í kringum hlutina. Það er löngu tímabært að ráðherra upplýsi hvaðan þessi aukning eigi að koma. Varla verður það raunin að ráðherra brjóti lög og baki íslenska ríkinu bótaskyldu af ásetningi.“
Þarna er ekki töluð nein tæpitunga. Ekki virðist fara á milli mála hvern útgerðin telur eiga fiskveiðiheimildirnar. Það er kvótann. Eins hefur verið sagt að fyrsta grein laga um kvótann, það er að fiskimiðin séu sameign þjóðarinnar, hafi ekkert lagalegt gildi. Kannski fer best á því að afgreiða þessi mál fyrir dómsstólum, þurfi þess.