- Advertisement -

Verjum hagsmuni Íslands af festu

Alþingi:„Ákvörðun Evrópusambandsins um að setja verndartolla á kísilmálm er mikið áfall fyrir íslenskt efnahagslíf. Hún snertir eina af helstu útflutningsstoðum okkar og gengur þvert á grundvallarákvæði EES-samningsins um frjálst flæði vöru og jafnræði aðila á innri markaðnum. Réttur okkar og samningar eiga að tryggja að við sitjum við sama borð, og því vekur þessi ákvörðun furðu,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson á þingi í gær.

„Íslensk stjórnvöld verða að bregðast hart við, leita réttar okkar vegna þessa samningsbrots og tryggja að íslenskir hagsmunir séu varðir. Hér þarf sameiginlegt átak þvert á flokka til að standa vörð um rétt Íslands og trúverðugleika EES-samningsins.

Afleiðingar þessarar ákvörðunar ESB eru ófyrirsjáanlegar og kunna að hafa víðtæk áhrif. Mikilvægt er að stjórnvöld standi fast í fæturna og verji hagsmuni Íslands af festu.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: