- Advertisement -

Við verðum að uppræta þetta ófremdarástand

Kópavogsbær og fólkið sem sér um húsnæðismálin þar má alveg skammast sín.

Kristjana Elínborg Óskarsdóttir skrifar: „Ég er öryrki og með 215.000 kr. Að meðaltali á mánuði. Ég borga 235.000 kr. í leigu og dóttir mín hjálpar mér að borga hana. Hún hætti í framhaldsskóla til ađ borga leigu með mér. Þetta er ekki í lagi. Ég er á biðlista hjá Kópavogsbæ eftir félagslegu húsnæði. Ég mun þurfa að bíða í 3 ár.

Verður stelpan mín þá búin að gefast upp á áframhaldandi námi? Verður hún að lifa á lágum launum vegna þess að ég varð veik og er öryrki á Íslandi? Kópavogsbær og fólkið sem sér um húsnæðismálin þar má alveg skammast sín. Sem og ríkisstjórnin. Ekki fara skattpeningarnir okkar til að hjálpa fólkinu í landinu nema síðar sé.

Mig vantar íbúð á viðráðanlegu verði. Dóttir mín þarf að mennta sig til að geta borgað sitt húsnæði í framtíðinni. Það eru 200 fjölskyldur á biðlista Kópavogsbæjar eftir húsnæði. 200! Og þá erum við bara að tala um eitt bæjarfélag á höfuðborgarsvæðinu.
Elsku vinir og fjölskylda, við verðum að uppræta þetta ófremdarástand. Hjálpið mér með því að deila þessu, skrifa valdhöfum bréf, diskótera við vini og hjálpast að með því að hvetja valdhafa í breytingar til hans betra. Þau ríku verða ríkari og fátækt fátækari. Bilið breikkar hratt. Breytum þessu.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: