- Advertisement -

Vilhjálmur hefur óbeit á misbeitingu valds

Facebook:

Vilhjálmur Birgisson skrifaði:

Mér ofbýður framkoman í máli skólameistara Borgarholtsskóla. Það erfiðasta við að starfa sem forystumaður í stéttarfélagi er að standa varnarlaus gagnvart uppsögnum félagsmanna sem ekkert hafa til sakar unnið – annað en persónulega óvild yfirmanns. Ég hef fengið slík mál á mitt borð og það er alltaf jafn ömurlegt að sjá fólk, sem hefur staðið sig afburðavel í starfi, missa vinnuna ekki vegna hagræðingar eða breytinga heldur vegna þess að einhverjum yfirmanni líkar ekki við það.

Þess vegna er mér misboðið að sjá mann með 40 ára farsælan og óflekkaðan feril innan menntakerfisins, sem á aðeins tvö ár eftir í starfslok, fá þau skilaboð að staða hans verði auglýst – án trúverðugra raka, án málefnalegrar ástæðu og án þess að nokkuð liggi fyrir sem réttlætir slíka aðför. Svona förum við einfaldlega ekki með fólk á íslenskum vinnumarkaði.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Það er yfir þessu öllu saman pólitísk skítalykt. Hún er megn sú lykt og hún er óhugnanleg. Að horfa upp á fólk verja þessi vinnubrögð – sem bera öll merki flokkspólitískrar hollustu – er dapurlegt og segir allt sem segja þarf. Ég bið það fólk að taka af sér flokkspólitísku gleraugun og rýna í staðreyndirnar: hér er verið að koma ómaklega fram við starfsmann sem hefur þjónað menntakerfinu af heiðarleika og samviskusemi í fjóra áratugi.

Ég skrifa þetta sem forystumaður í verkalýðshreyfingunni sem hefur óbeit á misbeitingu valds. Það er eitt það ógeðfelldasta sem ég veit þegar fólki er ýtt út úr starfi án þess að hafa neitt unnið sér til sakar. Og það er ekki bara ósiðlegt – það er skaðlegt, mannskemmandi og brýtur niður traust og virðingu á vinnumarkaði.

Svona framkoma gagnvart fólki með ævilanga þjónustu er einfaldlega til ævarandi skammar fyrir þá sem að henni stóðu.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: