
Nýtt örorku- og endurhæfingarkerfi hefur verið tekið í noktun. Af því tilefni sagði Inga Sæland, félagsmálaráðherra:
„Nýtt kerfi er betra, manneskjulegra og sanngjarnara. Við tökum núna betur utan um fólkið okkar og þann mannauð sem í því býr. Aukningin til öryrkja eru 18.000 milljónir króna á ári sem eru mesta kjarabætur sem þessi hópur hefur fengið í áratugi. Ég þekki af eigin raun hversu óréttlátt og flókið gamla kerfið var og er afar stolt á þessum tímamótum.“
Huld Magnúsdóttir, forstjóri TR, sagði meðal annars:
„Breytingarnar eru stórt skref í átt að nútímalegra örorku- og endurhæfingarkerfi sem er í takti við samfélagslegar breytingar undanfarinna ára. Hugsunin er að hver einstaklingur fái þjónustu við hæfi og að með nýju kerfi verði meiri samfella og skilvirkni í þjónustu.“