Stjórnmál Atli Þór Fanndal skrifaði:
„Það er svolítið fyndið að menntaskólaklíkan í kringum formann Samfylkingarinnar haldi að þau geti þagað barnafangelsun af sér. Uppáhaldstaktík Samfylkingarinnar að gera ekki neitt og þaga bara af sér. Það virkar ekkert á verðbólguna og mun að sjálfsögðu ekki virka í þessu máli. Hver þarf Miðflokk með svona jafnaðarmenn. Svo vitnað sé í einn af ódýrari þingmönnum Samfylkingarinnar sem spurð var hvers vegna útlendingaandúð og ómanneskjulegheit væru nú orðin jafnaðarstefna; „Vilt þú að Miðflokkurinn komist til valda?!?!!!!?“. Nei, það vill ég svo sannarlega ekki og einmitt þess vegna fíla ég ekki að ríkisstjórnin sé með dómsmálaráðherra sem kemur andlega úr Miðflokknum…“