Bjarni kom inn bakdyramegin
Stjórnmál Bjarni Benediktsson, fyrrverandi þessa og hins, er nú helsti talsmaður atvinnurekenda í þjóðmálum. Margt fólk hafði fengið nóg, jafnvel meira en nóg, af Bjarna. Ó, nei. Hann er mættur á ný.
Anna Hrefna Ingimundardóttir, frænka Bjarna er aðstoðarframkvæmdastjóri. Ekkert skal fullyrt um hvort hún hafi dreymt um að taka við þegar Sigríður Margrét hætti sem framkvæmdastjóri og fór í Bláa lónið. Samt er það ekki ólíklegt.
Bjarni og Anna Hrefna eru bræðrabörn. Hann sonur Benedikts Sveinssonar og hún dóttir bróður Benedikts, Ingimundar Sveinssonar. Bæði eru þau, Bjarni og Anna Hrefna, Engeyingar að eilífu.
Mörgu fólki var kannski létt þegar Bjarni hvarf af sjónarsviðinu, og var ekki einn af helstu talsmönnum stjórnmála eða þá stórra hagsmunasamtaka. Aðgengi Bjarna að Sjálfstæðisflokknum er augljós. Aðeins Ólafur Thors hefur verið formaður flokksins lengur en Bjarni.
Því er klókt að ráða Bjarna sem helsta talsmanns Samtaka atvinnulífsins. Víða verður honum ekki mótmælt.
Framundan eru átök um kjaramál. Þá mun Bjarni jafnvel verða daglegur gestur í sjónvarpi, netmiðlum og Mogganum.