- Advertisement -

HÓFSTILLT UMRÆÐA

Efnahagsmál: Sigurjón Þórðarson, formaður fjárlaganefndar, skrifaði:

„Óvart þá horfði ég pallborðið á fundi SFF sem vitnað er til og þar fór fram málefnaleg umræða að mestu um efnahagsmálin. Það var helst formaður að Sjálfstæðisflokksins hafi vaðið á súðum en í máli Guðrúnar kom fram að Sjálfstæðisflokkurinn hefði gert allt rétt á meðan hann stjórnaði og núverandi ríkisstjórn væri að gera allt vont, en það virðist vera fallið í gleymskunnar dá að verðbólgan í ársbyrjun 2023 var 10,2%.

Þorsteinn Víglundsson formaður SI hafði fyrst og fremst áhyggjur af háu vaxtastigi og þá að hækkaður bankaskattur ynni á móti lækkun fjármagnskostnaðar.

„…m.a. um vaxtamun en hann er 200% hærri hér en í nágrannaríkunum.“

Ef farið er yfir hagnaðartölur bankanna á þessu ári þá virðist stefna í á annað hundrað milljarð kr. í hreinan hagnað á sama tíma og það herðir að m.a. í byggingariðnaði. Ekki er að ráða á þessum tölum að fjármálafyrirtækin séu að deila kjörum með öðrum hvoki almenningi né fyrirtækjunum og þrátt fyrir hærri bankaskatt þá stefnir í að það verði 100 milljarðar eftir í hagnaðarpoka bankanna.

Eitt sem vantar algerlega í umræðuna er samkeppnisstaða fyrirtækja sem þurfa að reiða sig á íslenska bankakerfið og hinna sem hafa aðgang að ódýrari fjármögnun. Ég vænti þess að stórir ráðandi aðilar innan SI séu nánast óháðir íslenskum fjármálafyrirtækjum og íslenskum vöxtum m.a. álverin, KS og Marel á meðan smærri verktakar eru undir þungu vaxtaokri og greiða um 14% vexti.

Fyrir allan þorra almennings og fyrirtækja skipti miklu máli að byggja undir stefnu stjórnvalda um aðhald og vöxt til þess að endar nái saman. Það er einnig komið að því að stjórnvöld setji Landsbankanum skýra eigendastefnu m.a. um vaxtamun en hann er 200% hærri hér en í nágrannaríkunum.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: