
Sigurjón Þórðarson alþingismaður skrifaði:
„Hversu lágt er hægt að leggjast ár eftir ár? Í stað þess að það sé lagður fram rökstuðningur fyrir afslætti fyrir eldið, þá er farin þessi klúra leið.“
Stjórnmál: „Ef einhver er að pæla í því hvað sé í gangi á Alþingi Íslendinga þegar stjórnarandstaðan heldur nú hverja löngu, en innihaldslitlu, ræðuna hverja á fætur annarri m.a. um samgöngumál og fer síðan í andsvör við sig sjálfa í kjölfarið, þá ætti svarið ekki að koma á óvart.
Málið snýst um að bæta samningsstöðu sína þegar komið er að þinglokasamningum. Hvað ætli sé þar efst á blaði annað en að ná niður gjöldum fyrir SFS um einhverjar krónur á hvert fiskeldiskíló, í tengslum við löggildingu frumvarps um lagareldi.
Nú er ég fylgjandi því að treytsta grundvöll fiskeldis með öllum ráðum og ennfremur að fyrirtækin leggi sanngjarnan skerf til samfélagsins. Þessar aðfarir stjórnarandstöðunnar minna á framferði hennar í veiðigjaldamálinu fyrir ári síðan.
Hversu lágt er hægt að leggjast ár eftir ár? Í stað þess að það sé lagður fram rökstuðningur fyrir afslætti fyrir eldið, þá er farin þessi klúra leið.“