- Advertisement -

Inga er sigurvegari haustþingsins

Umræðan: Viðar Eggertsson skrifaði á Facebook:

„Sigurvegari haustþingsins er án efa valkyrjan Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra!“

Um miðj­an des­em­ber sam­þykkti Al­þingi frumvarp Ingu Sæland um jóla­bón­us líf­eyr­is­þega. Katta­- og hunda­eig­end­ur þurfa ekki leng­ur sam­þykki ná­granna sinna fyr­ir gælu­dýra­haldi í fjöl­eign­ar­hús­um, tek­in hef­ur ver­ið upp al­menn skrán­ing­ar­skylda leigu­samn­inga til að afla megi heild­stæðra upp­lýs­inga um leigu­mark­að­inn, rétt­ur for­eldra til fæð­ing­ar­or­lofs og sorg­ar­leyf­is hef­ur ver­ið bætt­ur og frí­tekju­mark elli­líf­eyr­is hækk­að.

Á síð­asta þing­fundi fyr­ir jóla­frí var sam­þykkt frum­varp sem fest­ir hlut­deild­ar­lán í sessi og mán­að­ar­leg­ar út­hlut­an­ir lána tryggð­ur gagn­vart lán­tök­um jafnt sem bygg­ing­ar­að­il­u­m. Einnig var sam­þykkt að hækka ár­lega láns­fjár­heim­ild Hús­næð­is­ og mann­virkja­stofn­un úr 4 millj­örð­um í 5.5 millj­arða. Hlut­deild­ar­lán voru fyrst kynnt til sög­unn­ar ár­ið 2020 til að hjálpa fyrstu kaup­end­um fast­eigna að kom­ast inn á mark­að­inn. Í hinu ný­sam­þykkta frum­varpi kem­ur fram að Ís­land hafi dreg­ist aft­ur úr öðr­um lönd­um OECD í hlut­falli þeirra sem eiga sér­eign og því þurfi að bregð­ast við.

Þú gætir haft áhuga á þessum

…ver­ið bar­átt­u­­mál hjá Ingu…

Rús­ín­an í pylsu­end­an­um fyr­ir Ingu per­sónu­lega var án efa lög­fest­ing samn­ings­ins um rétt­indi fatl­aðs fólks. Lög­fest­ing­in hef­ur í för með sér að ákvæði samn­ings­ins fá laga­­gildi og geta ein­stak­l­ing­­ar byggt rétt sinn á ákvæð­­um hans fyr­­ir dóm­stól­­um og öðr­­um úr­­­skurð­­ar­að­il­u­m. Lög­­­fest­ing­in hef­­ur lengi ver­ið bar­átt­u­­mál hjá Ingu sem lagði fjór­­um sinn­­um fram þing­­mál þess efn­­is þeg­­ar hún var þing­­mað­­ur í stjórn­­­ar­and­­stöð­u.“

(Heimild: Gímaldið. Ljósm.: Ragnar Visage/RUV)


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: