- Advertisement -

Stendur Þorgerður Katrín eða fellur?

Leiðari:

Sigurjón Magnús Egilsson skrifaði:

Fleiri og fleiri virðast telja að lokakafli í pólitísku lífi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttir sé hafinn og honum sé rétt við það að ljúka. Tvennt vegur þyngst, Niðurstaðan úr þjóðaratkvæðisgreiðslunni 29. ágúst og svo ákvörðun Jóns Gnarr að segja skilið við þingflokk Viðreisnar og eftirmálar þess.

Sá sem leggur mál í dóm þjóðarinnar og tapar á að segja af sér. Stíga út úr sínu pólitíska lífi. Og að engu breyti þó mjótt sé á mununum. Sá sem tapar – sá fer. Ég held ekki að úrslit kosninganna ein og sér dugi til þess að Þorgerður Katrín eigi sér ekki viðreisnar von.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Að endingu
sprakk hann.

Þá er það Jón Gnarr. Fyrir hann er lokaðir þingflokksfundir ekki nóg. Hann er stjarna hins stóra sviðs. Honum leiddist greinilega að vera alltaf með sama fámenna hópnum á lokuðum fundum. Að endingu sprakk hann. Þráði stærra svið og fékk. Hann mætti í viðtal eftir viðtal. Eftir því sem þau urðu fleiri æstist leikurinn. Hann sagði alltaf meira og meira.

Framganga Jóns varð til þess að fleira og fleira kom fram. Agaleysi, óheilindi og fleira virðist hafa ríkt innan þingflokksins. Hver á að laga það sem miður hefur farið. „Á ég að gera það,“ hefði Indriði sagt. Nei, ekki þú Indriði. Formaður og varaformaður Viðreisnar áttu að laga það sem miður hefur farið. Og hafna allri meðvirkni.

Þorgerður Katrín flutti glæsilega og eftirtektarverða ræðu á síðasta allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Sýndi þar kjark og þor. Það virðist ekki duga henni til að skapa frið um sjálfa sig. Nú standa tvö spjót að henni. ESB-kosningin og upplausn innan þingflokksins.

Næstu vikur, jafnvel næstu dagar, munu ráða úrslitum. Agaleysi innan þingflokksins verður henni erfiðara en þjóðaratkvæðagreiðslan. Staða Þorgerðar Katrínar er erfið. Jafnvel innan Viðreisnar og það þrátt fyrir hversu henni tókst vel til við stjórnarmyndunina. Þar landað hún fjórum afgerandi ráðuneytum.

Á næstu dögum skýrist hvað verður. Sjálfur held ég að hún standi ágjöfina af sér.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: