- Advertisement -

Atvinnurekendur í hefndarhug gegn starfsfólki

Við erum sterk, við erum stolt og við stöndum saman um réttindi hvers annars.

„Talsvert var um verkfallsbrot og félaginu bárust einnig fregnir af ýmsum óeðlilegum þrýstingi einstakra atvinnurekenda í garð starfsmanna. Má þar nefna loforð um greiðslur, hótanir um frádrátt greiðslna og að starfsmenn hafi verið látnir gjalda á annan hátt fyrir þátttöku í verkföllum.“

Þetta segir meðal annars í frétt á efling.is.

Efling hefur sent bréf til forsvarsmanna hótela og hópbifreiðafyrirtækja með áskorun um að láta starfsfólk ekki gjalda fyrir störf sín fyrir Eflingu í aðdraganda samningsgerðar, þar með talið í tengslum við verkföll.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, sagði af þessu tilefni: „Því miður hefur reynsla undanfarinna vikna kennt okkur að sumir atvinnurekendur eru í hefndarhug gegn starfsfólki sínu. Það er allt of algengt að atvinnurekendur telji sig hafa heimildir til að refsa starfsfólki fyrir þátttöku í starfi stéttarfélags, til dæmis í verkfallsvörslu eða að hafa komið fram opinberlega og tjáð sig um aðstæður á sínum vinnustað. Einnig höfum við séð dæmi um eins konar hóprefsingar, svo sem óheimilan launafrádrátt hjá IcelandAir Hotels. Skilaboð okkar til atvinnurekenda eru: Nú er mál að linni. Virðið réttindi starfsfólks.“

Sólveig Anna:
Atvinnurekendur hafa of lengi komist upp með gerræði og yfirgang, væntanlega af því að þeir halda að láglaunafólk eigi sér ekki rödd og málsvara.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar: „Á síðustu vikum höfum við orðið vör við eitthvað sem ég get best lýst sem kúgunarkúltúr á íslenskum láglaunavinnustöðum. Atvinnurekendur hafa of lengi komist upp með gerræði og yfirgang, væntanlega af því að þeir halda að láglaunafólk eigi sér ekki rödd og málsvara. Verkfallsaðgerðir okkar, meðal annars hinn stórglæsilegi verkfallsdagur 8. mars þar sem láglaunakonur sýndu mátt sinn og megin, sanna hins vegar að svo er ekki. Við erum sterk, við erum stolt og við stöndum saman um réttindi hvers annars. Þetta eru skilaboðin okkar til atvinnurekenda og þau breytast ekki þótt kjarasamningur liggi fyrir.“

Sjá nánar hér.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: