- Advertisement -

Jón Steinar um Katrínu: Hún hefur verið í forystu fyrir þá sem vilja drepa börn í móðurkviði alveg fram að fæðingu

Samfélag „Það er furðulegt að nær helmingur stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins hyggist samkvæmt könnun Morgunblaðsins kjósa Katrínu Jakobsdóttur í embætti forseta Íslands í komandi kosningum. Þessi kona hefur verið í forystu þeirra sem hafa árum saman hindrað virkjun okkar náttúruvænu orku til rafmagnsframleiðslu í landinu, þannig að nú þurfum við að framleiða raforku með olíu. Í orku fallvatna og jarðvarma felast einhverjar verðmætustu auðlindir landsins. Svo hefur hún verið í forystu fyrir þá landsmenn sem hafa viljað drepa börn í móðurkviði alveg fram að fæðingu,“ skrifar Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi hæstaréttardómari.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: