- Advertisement -

Bauhaus sagði ósatt um verðlækkun

Neytendur Bauhaus hefur verið gert að borga hálfa milljón króna vegna þess að forráðamenn verslunarinnar auglýstu lækkað verð, þó þeir hafi ekki lækkað verðið á viðkomandi vöru.

Neytendastofa krafðist þess að Bauhaus færði sönnur á að fjórar vörur, LEIKJAHÚS, LILLEVILLA 70, LILLEVILLA 12 og LILLEVILLA BÍLSKÚR hefðu áður verið seldar á því sem verslunin hafi verið verðið fyrir augslýsta verðlækkun. „Þegar vara er auglýst á tilboði þarf, auk tilboðsverðsins, að gefa upp fyrra verð vörunnar, það er það verð sem var á vörunni fyrir lækkun. Bauhaus gat ekki að mati Neytendastofu sýnt fram á að tilgreint fyrra verð varanna hafi verið það verð sem vörurnar voru síðast selda á. Var Bauhaus því bannað að viðhafa slíka viðskiptahætti og var jafnframt gert að greiða fimmhundruð króna stjórnvaldssekt.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: