- Advertisement -

Hvað kostar að horfa á Kirkjufellið?

En ef fólk fær ekki skýrar upplýsingar um verð og greiðsluskilmála, þá hættir gjaldtakan að vera sanngjörn og jafnvel lögleg.

Hanna Katrín Friðriksson.

„Það var leiðinleg sending sem fjölskylda úr Grafarvogi fékk í kjölfar frábærrar dagsferðar um Snæfellsnes. Sendingin barst í heimabankann, rukkun upp á 5.750 krónur af því að þau stoppuðu stutta stund við hið fallega Kirkjufell. Grunngjaldið var 1.000 krónur, en þar sem ekki var greitt innan sólarhrings bættist við 4.500 króna vangreiðsluálag og 250 króna færslugjald,“ skrifaði Hanna Katrín Friðriksson innviðaráðherra.

„Enginn í fjölskyldunni hafði tekið eftir neinum skýrum merkjum um gjaldskyldu – né leiðbeiningum um hvernig greiða skyldi. Þetta er ekki einsdæmi. Kvartanir vegna svipaðra mála berast bæði Neytendastofu og Neytendasamtökunum nánast vikulega, þar sem fólk lýsir óljósri, ósýnilegri eða villandi gjaldtöku sem kemur fram löngu eftir að ferðinni er lokið.“

„Það er dýrt að byggja upp og reka bílastæði. Þess vegna á það ekki að koma á óvart þegar gjald er tekið fyrir afnot af stæðum. En ef fólk fær ekki skýrar upplýsingar um verð og greiðsluskilmála, þá hættir gjaldtakan að vera sanngjörn og jafnvel lögleg.

Lenti í nákvæmlega þessu í fyrra.

Neytendastofa hefur í kjölfar fjölda kvartana skoðað viðskiptahætti nokkurra bílastæðafyrirtækja. Í ljós hafa komið dæmi þar sem leiðbeiningar um greiðslu eru óskýrar eða ófullnægjandi og aukagjöld ekki kynnt fyrirfram. Upplýsingagjöf á reikningum í heimabanka er líka oft mjög ábótavant,“ skrifaði Hanna Katrín.

Og lauk skrifum sínun svona: „Því hefur nú verið beint til viðkomandi fyrirtækja að lagfæra upplýsingagjöf og samræma gjaldtökuna við lög. Stjórnvöld munu fylgja því fast eftir að þessar úrbætur nái fram að ganga. Ef lögin eru óskýr þá verður það lagfært. Almenningur á rétt á því að þessi mál séu í lagi.“

Egill Helgason þekkir þetta: „Lenti í nákvæmlega þessu í fyrra – örstutt stopp á þessum stað. Rukkunin kom nánast samstundis. Fimm þúsund kall.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: