ff7.is: Tunna af Norðursjávarolíu kostar nú rétt undir 80 dollurum. Svo lágt hefur verðið ekki verið síðan snemma í mars sl.
Verðið hækkaði hratt í byrjun þess mánaðar í kjölfar innrásar Bandaríkjanna og Ísrael á Íran.
Nú hafa ráðmenn í Washington og Teheran náð saman um frið og vonir standa til að olíuflutningar um Hormússund hefjist á föstudaginn. Það er meginskýringin á lækkandi olíuverði.