- Advertisement -

Tólf milljarðar í spilakassana

Bjarni Benediktsson og Guðmundur Ingi Kristinsson. Loks urðu þeir sammála. Báðir hafa þeir áhyggjur af spilafíkn.

„Er eðlilegt að Rauði kross Íslands, Landsbjörg, SÁÁ, og Háskóli Íslands séu drifin áfram af spilakössum? Nú er komið í ljós að meðan kassarnir voru lokaðir stórbatnaði hagur spilafíkla,“ sagði Guðmundur Ingi Kristinsson, Flokki fólksins á Alþingi.

„Það eru örfáir einstaklingar sem halda öllu þessu uppi, um 10–12 milljörðum og af því eru ekki nema 40–50% gróði, hitt er allt kostnaður sem fer til útlanda.“

Bjarni Benediktsson var til svara: „Varðandi spilakassana er það hárrétt hjá háttvirtum þingmanni að það er algjör hörmung hversu margir þurfa að glíma við spilafíkn. Það er alveg gild spurning hversu stór þáttur í vanda þeirra opnu spilakassarnir eru.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Guðmundur Ingi spurði: „Er ekki eðlilegt að ríkissjóður semji við þessa aðila og sjái til þess að úr ríkissjóði komi greiðslur frekar en að gera út á örfáa fíkla sem leggja allt undir, m.a. heimili, og eru þar af leiðandi berskjaldaðir og eiga ekki á nokkurn hátt að láta svona félög, sem eru nauðsynleg, verða háð spilafíklum sem halda þeim uppi?“

Bjarni: „Þar er stóra spurningin: Hvert annað leita spilafíklar ef ekki í spilakassana?“

Hann sagði Guðmund Inga benda á að alls konar góðgerðasamtök og aðrir aðilar sem vinna að brýnum samfélagslegum verkefnum skuli fjármagna sig með þessum hætti. „Þá er auðvelt að benda á ýmislegt annað sem er á jaðri spilakassanna, happdrætti og lottó og hvað þetta allt saman er. Ég er talsmaður þess að við lokum ekki með öllu á þetta en spilakassarnir eru svo sem ekki þannig úr garði gerðir að ég ætli að fara að mæla þeim sérstaklega bót. Við þurfum að finna einhvern eðlilegan meðalveg í þessum efnum.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: