- Advertisement -

Þingmenn fengu tífalt meira en öryrkjar

Ofbeldið heldur áfram.

„Hæstvirtur fjármálaráðherra er kominn í stríð við öryrkja,“ sagði Guðmundur Ingi Kristinsson, Flokki fólksins.

„Honum finnst allar hækkanir undanfarinna ára hafa runnið í vasa öryrkja vegna þess að framlög til almannatrygginga hafa tvöfaldast á ákveðnu tímabili. Ofbeldið hjá þessari ríkisstjórn sem hann er í birtist í mörgum myndum, eins og t.d. því að króna á móti krónu er bara 65 aurar á móti krónu. Hvað hefur ríkið sparað sér mikið nú þegar við að hafa þetta svona? Jú, yfir 50 milljarðar hafa sparast vegna þess að öryrkjar hafa ekki fengið krónu á móti krónu burt eins og allir flokkar sem núna eru við völd lofuðu. Því miður verða næstu mánaðamót erfið fyrir öryrkja. Því miður heldur ofbeldið áfram. Öryrkjar þurfa að fara í röð eftir mat, þeir sem geta, og þeir sem geta það ekki þurfa að herða sultarólina enn meira,“ sagði Guðmundur Ingi.

Er þetta sanngjarnt?

„Af hverju var ekki farið eftir launaþróun í málefnum öryrkja? Af hverju fá öryrkjar ekki kjaragliðnun leiðrétta? Af hverju fengu þingmenn svo til á einni nóttu um 700.000 kr. hækkun en öryrkjar bara 60.000 yfir ákveðið tímabil? Af hverju? Er þetta sanngjarnt? Hvernig í ósköpunum ætlið þið að réttlæta það, og ég vil fá svar við því, að öryrkjar og ellilífeyrisþegar eiga að lifa á 70.000–80.000 kr. minna á mánuði en lægstu laun eru? Svarið því, þið sem eruð í ríkisstjórn, hvers vegna það er. Hvað er það í fari þeirra sem veldur því að þið teljið að öryrkjar eigi ekki aðeins að lifa í fátækt, ekki í sárafátækt heldur eigi að svelta og eiga ekki fyrir lyfjum, mat eða öðrum nauðsynjum?“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: