- Advertisement -

Sendir Viðreisn ískaldar kveðjur

Það siðleysi sem viðist vera orðið norm í pólitíkinni fer mjög fyrir brjóstið á mér.

Guðmundur Ragnarsson.

Guðmundur Ragnarsson, fyrrverandi formaður VM, félags vélstjóra og málmtæknimanna, skrifaði eftirfarand:

Ég er oft spurður af hverju ég hætti í Viðreisn.

Svarið við því er einfalt.

Þú gætir haft áhuga á þessum

En ég lét vaða að ganga í flokkinn…

Ég gekk í stjórnmálaflokk 2020 sem var mér að skapi og uppfyllti mínar væntingar um breyttar áherslur í þjóðmálum.

Aðalmálið var hinsvegar breytingar í efnahags- og gjaldmiðlamálum sem mér er mjög umhugað um og er grunnur að öllu öðru.

Stefnunni í borginni var ég algerlega á móti enda var þar verið að framkalla mestu efnahagsmistök sögunnar eftir hrun með Samfylkingunni, sem valdið hafa einstaklingum og fjölskyldum þessa lands ómældum fjárhagslegum skaða.

En ég lét vaða að ganga í flokkinn, hélt að það skynsama fólk sem var þar færi að taka á bullinu í borginni. Þessi skoðun mín var ekki vinsæl. Ég hafði mjög gaman af því að starfa þarna að mínum hugsjónum.

Þegar síðasta ríkisstjórn sprakk, sá ég þennan flokk sem ég taldi með háleit markmið breytast í sértrúasöfnuð, öllum gildum hent til hliðar og bara hugsað um að ná atkvæðum. Segja það sem fólk vildi heyra, hafa gaman og forðast að ræða raunhæfar lausnir á vandamálum samfélagsins.

Með eitt markmið að leiðarljósi að komast í ráðherrastól. Þarna upplifði ég að verið væri að taka einkahagsmuni forystunnar fram yfir almannahagsmuni.

Það kom mér á óvart hvað almenn þekking um málefni samfélagsins, atvinnulífsins og vinnumarkaðarins var mjög grunn, meðal annars hjá sumum þingmönnum.

Þegar svo einstaklingar sem báru ábyrgð á öllum þeim efnahagslegu afleiðingum þéttingar byggðar og almenns klúðurs í Reykjavík voru settir í efstu sætin fékk ég nóg og kvaddi.

Það siðleysi sem viðist vera…

Flokkur sem ekki er tilbúinn að viðukenna eigin mistök er ekki að fara að leysa nein mál. Hvað á að gera með þessa aðila á þingi? Á að láta þá valda sama skaða í landsmálunum eins og í borginni þar sem allt er í klessu alveg sama hvaða málaflokkur er skoðaður ?

Þetta er kannski ástæða þess að við virðumst ekki geta gert neitt af viti út frá almennri skynsemi, við komumst aldrei að kjarnanum fyrir bullinu.

Að allir eigi rétt á öllu eru sjónarmið sem eru alsráðandi og fólk fer fram með það án þess að vita hver og eða hvernig á að fjármagna þær. Endalaust verið að búa til óraunhæfar væntingar.

Það siðleysi sem viðist vera orðið norm í pólitíkinni fer mjög fyrir brjóstið á mér.

Að það sé orðið eðlilegt að segja almenningi ósatt vitandi það að það sem er verið að segja ætlar engin að fara að standa við.

Ég er mjög sáttur með þessa ákvörðun mína eins og Viðreisn er í dag, enda get ég ekki séð fyrir hvað flokkurinn stendur.

Greinina birti Guðmundur á Facebook.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: