- Advertisement -

Utanríkispólitískur popúlismi

„Þetta virkar eins og mynd af gervihnetti á sporbaug umhverfis stækkandi tungl Miðflokksins.“

Þorsteinn Pálsson.

Stjórnmál: Þorsteinn Pálsson skrifar að venju á dv.is. Hér fer hluti nýjustu greinar hans:

„Nú fer Miðflokkurinn fyrir utanríkispólitískum popúlisma yst á jaðrinum til hægri. Hann fylgir MAGA-hreyfingunni í Bandaríkjunum og vill leysa upp Evrópusamstarfið eins og hún. Þar með yrði mikilvægasta efnahagssamstarf Íslands, EES-samningurinn, úr sögunni.

Miðflokkurinn styður árásir Bandaríkjanna á Evrópuvæng NATO og hefur fylgt óskiljanlegum stríðsrekstri þeirra í Miðausturlöndum, sem veldur efnahagslegum skaða á Íslandi eins og víða annars staðar.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Miðflokkurinn staðhæfir að leiðtogar bandalagsþjóða í NATO og á innri markaði Evrópusambandsins vilji brjóta niður fullveldi Íslands og stela auðlindum þess.

Þegar forsætisráðherra bauð forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, stærsta viðskiptasvæðis Íslendinga, til samtals hér heima var því líkt við launráð og undirferli, sem stappaði næst landráðum.

Nú er Snorrabúð stekkur

Og svo keppast nýir leiðtogar Sjálfstæðisflokksins við að yfirbjóða þessa utanríkispólitísku popúlistaumræðu lengst til hægri, sem gengur þvert á þær hugsjónir, sem áður lágu til grundvallar sjálfstæðisstefnunni og utanríkispólitískri samvinnu yfir miðjuna.

Þetta er gert með stöðugum upphrópunum, æsingi, útúrsnúningum og aðgerðum til að leiða umræðuna frá málefnalegum rökræðum eftir MAGA forskrift. Rökræður yfir miðjuna eru nú svik við þessa nýju aðferðafræði.

Þetta virkar eins og mynd af gervihnetti á sporbaug umhverfis stækkandi tungl Miðflokksins.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: