- Advertisement -

ER ÞETTA ÁSÆTTANLEGT?

Sigurjón Þórðarson, Flokki fólsksins, skrifaði:

Lúðrasveit sérhagsmuna er búin að kokka upp dæmalausa samsæriskenningu á þann veg að rekja megi skrif danska stórblaðsins til leynimakks RÚV og Gísla Marteins um að koma þjóðinni inn í ESB.

Stjórnmál: „Það hefur verið fróðlegt að fylgjast með viðbrögðum við grein Emil Eire Frerk Olsen um íslenskan sjávarútveg. Ríkisstyrkta Morgunblaðið hefur víst ekki enn fjallað um frétt Berlingske hvað sem síðar verður, á meðan fréttir berast af því að helsti bloggari blaðsins hafi vandað um fyrir blaðamanninn unga.

Lúðrasveit sérhagsmuna er búin að kokka upp dæmalausa samsæriskenningu á þann veg að rekja megi skrif danska stórblaðsins til leynimakks RÚV og Gísla Marteins um að koma þjóðinni inn í ESB.

Málið snýst auðvitað ekki um ESB heldur um hvort það sé ásættanlegt stórútgerðin komist upp með að verðleggja „sína“ ýsu á helmingi lægra verði inn í sína vinnslu en það sem litli harðfiskverkandinn þarf að greiða fyrir sambærilega fisk á markaði þ.e. gríðarmikla milliverðlagningu sem fer fram fyrir opnum tjöldum. Málið snýst þá einnig um sanngjarnt uppgjör til sjómanna, rétt uppgjör við hafnarsjóði og útsvar til sveitarfélaga.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: