- Advertisement -

Vondar breytingar sem gerðar eru til bjargar einum stjórnarflokkanna

Björn Valur Gíslason skipstjóri og fyrrum þingmaður skrifaði:

Meginmarkið laga um stjórn fiskveiða er að vernda nytjastofna í hafinu umhverfis landið og stuðla að hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja þannig atvinnu og byggð í landinu.

Þetta þýðir í stuttu máli að forsenda þessa að hægt sé að tryggja atvinnu og byggð í landinu sé að vernda nytjastofna og stuðla þannig að hagkvæmri nýtingu þeirra.

Ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að skipta stjórn fiskveiða upp í tvö ráðuneyti er fyrst og síðast pólitísk ákvörðun með það að markmiði forða Flokki fólksins frá hneysu og halda frið innan ríkisstjórnarflokkanna, jafnvel þó það munin leiða til þess að markmið laganna náist síður. Þetta er augljóst.

Þú gætir haft áhuga á þessum

…fyrst og síðast í pólitískum tilgangi…

Það hefur verið ágæt samstaða síðari árin um það meðal þeirra sem starfa í sjávarútvegi að rétt sé að fylgja ráðgjöf vísindamanna um veiðar, þ.e. hversu mikið má veiða úr tilteknum stofnum. Nú þegar tvö ráðuneyti eru komin með stjórn fiskveiða og annað þeirra með það augljósa markmið að auka veiðiheimildir í öðrum tilgangi en að vernda og nýta nytjastofna með sem hagkvæmustum hætti, mun annað ef eftirfarandi gerast:

Aflaheimildir verða fluttar til milli útgerðaflokka til að auka heimildir í byggðakerfi eða þá að farið verður gegn vísindalegri ráðgjöf um veiðar í sama tilgangi sem myndi hafa alvarlegar afleiðingar fyrir íslenskan sjávarútveg, óháð fiskveiðikerfum og hvaða nafni sem hann nefnist.

Við fyrstu sýn eru þetta vondar breytingar á stjórn fiskveiða sem gerðar eru fyrst og síðast í pólitískum tilgangi, til bjargar einum stjórnarflokkanna.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: