- Advertisement -

Þeir eru hættulegasta fyrirbæri nútímans

Framkvæmdir hafa hérlendis löngum verið samheiti yfir framfarir. Því miður.

Þröstur Ólafsson.

„Virkjanir! Nýjar virkjanir eiga að auðvelda okkur að fást við loftlagsvána, en þannig skil ég málflutning orkumálaráðherrans, sem jafnframt gegnir starfi umhverfisráðherra. Sérstök ráðstöfun það, en ekki einsdæmi,“ skrifar Þröstur Ólafsson hagfræðingur.

„Ef „vistvæn“ virkjun framleiðir rafmagn sem nánast eingöngu kemur í staðinn fyrir jarðefnaorku þá hafa, með nokkrum fyrirvörum, virkjunarmenn nokkuð til sín máls og þar með ráðherrann. Orkusala er hins vegar orðin frjáls og hlitir hreyfingum markaðsins. Þar myndast verðið. Líklegt er að að gagnaverin og stóriðjan muni hækka orkuverð svo að tiltölulega lítill hluti nýrrar vistvænnar orku ýti jarðefnaorku útí horn.

Efturspurn eftir vistvænni orku er óendanleg og ýms erlend stórfyrirtæki eru reiðubúin til að kaupa hana háu verði. Og hér kemur fullyrðing: Það er enginn orkuskortur í landinu, en dreifing orkunnar er, og hefur verið um nokkurtr skeið, vandamál sem stjórnmálamenn hafa einhverra hluta vegna ekki sýnt mikinn áhuga. Sennilega telja þeir þau vera atkæðarýrri en virkjunarframkvæmdir og hafa eflaust eitthvað til sín máls hvað það varðr.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Framkvæmdir hafa hérlendis löngum verið samheiti yfir framfarir. Því miður. Ef ný orka verður keypt til að framkalla meiri hagvöxt, aukna einkaneyslu með samfara mengun og aukinni losun gróðurhúsalofttegunda, þá er verr af stað farið en heima setið. Loftlagsváin ógnar skrýmsli sem við mennirnir höfum framkallað og höldum því ódegir áfram.

Daglegar fréttir um veðurhamfarir, flóð, ofsa lofthita, bráðnun jökla, skógarelda og þurrka sem eru að mestu angar þessarar vár, ættu að duga til að sparka ærlega í sköflunga okkar til að hætta að plata okkur sjálf annað hvort með því að gera lítið úr vánni eða afneita henni með öllu. Þeir síðastnefndu eru hættulegasta fyrirbæri nútímans,“ skrifaði Þröstur Ólafsson.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: