- Advertisement -

Beitum skýrri hagsmunagæslu

„Sjálfstæðisflokkurinn mun halda áfram að beita sér fyrir skýrri hagsmunagæslu. Við viljum stjórvöld sem standa vörð um frjálsa samkeppni, heiðarleg viðskipti og stöðugleika,“ segir meðal annars í nýrri grein Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins, í nýjasta tölublaði Viðskiptablaðsins.

Meginefni greinarinnar eru tollar Evrópusambandsins á járnblendi. Sem nú er búið að fresta um ókákveðinn tíma.

„Við viljum forystu sem talar með einni röddu fyrir Ísland þegar það skiptir máli og gerir það alltaf, ekki bara stundum.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Það er á svona tímum sem sést úr hverju forystfólk er gert. Þegar aðstæður eru erfiðar er ekki rétti tíminn til að þegja. Það er tíminn til að tala skýrt, verja hagsmuni Íslands og sýna að við ætlum að berjast fyrir því sem skiptir máli,“ skrifaði Guðrún Hafsteinsdóttir.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: