
Hrafn Magnússon skrifar:
Menntamálaráðherra vill hins vegar byggja nýjan sýningarsal við Þjóðleikhúsið sem mun kosta milljarða ef að líkum lætur. Gott og vel en eigum við ekki að forgangsraða verkefnum og byrja á heilbrigðiskerfinu?
„Er hægt að setja mælistiku á lífið sjálft? Svarið er auðvitað nei, þvi að lífið er jafn verðmætt öllum, háum sem lágum, án kynferðis og aldurs einstaklinganna. Mér datt þessi augljósu sannindi í hug, þegar upplýst var í fréttum að fjármálaráðherrann okkar væri sífellt að slá á fingur eyðsluglaðra samráðherra sinna, eins og það var orðað í umræddri frétt. Kannski var tilefnið það að heilbrigðisráðherra lagði til að bætt yrði úr brýnni þörf og fjárfest í svokölluðum línuhraðli sem notaður er í meðferð sjúklinga með krabbamein. Hver línuhraðall kostar um 600 m.kr. Keypt yrðu tvö tæki.
Byggja þarf húsnæði fyrir annan línuhraðalinn og mennta geislafræðinga til að vinna við þessi flóknu tæki. Stundum finnst mér að sérfræðingar sumir hverjir hafi ósjálfrátt annan skilning á lífi einstaklinga og mat þeirra fari oft eftir hugsanlegum kostnaði við sjúka og aldraða.
„Byrjum þar.“
Þegar einstaklingur fellur frá, sem ekki hefur komist inn á heilbrigðisstofnun eða hjúkrunarheimili og hefur verið lengi á biðlista, þá léttir það á kostnaði ríkis og sveitarfélaga. Verulegur sparnaður felst í því að hafa fólk sem lengst á biðlista!
Heilbrigðisráðherra benti á að með kaupum og endurnýjun þessara mikivægu tækja fyrir krabbameinssjúka væri verið að létta á innviðarskuldum hins opinbera.
Menntamálaráðherra vill hins vegar byggja nýjan sýningarsal við Þjóðleikhúsið sem mun kosta milljarða ef að líkum lætur. Gott og vel en eigum við ekki að forgangsraða verkefnum og byrja á heilbrigðiskerfinu?
Andlát þeirra einstaklinga sem eru á biðlistum er óásættanleg staðreynd. Sérfræðingarnir og stjórnmálamenn verða að nota framvegis rétta mælistiku.Heilbrigðiskerfið hefur verið í svelti. Byrjum þar.“