- Advertisement -

Hundrað þúsund milljónir, takk fyrir

Þegar hinir verst settu kveinka sér undan byrðunum er þeim mætt með hótunum um annað og verra.

Ásthildur Lóa Þórsdóttir.

Alþingi: Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Flokki fólksins, talaði á Alþingi í dag og svaraði þar meðal annars stjórnendum Seðlabankans. Hún sagði:

„Á þessum verðbólgutímum þar sem fjöldi heimila er að sligast undan háum vöxtum maka sumir krókinn. Bankarnir hafa t.d. enn og aftur skilað methagnaði sem nemur u.þ.b. 100.000 milljónum á síðasta ári. Seðlabankinn hefur aldrei lýst yfir áhyggjum af ofurhagnaði viðskiptabankanna eða hvatt þá til að draga úr álögum á heimili og fyrirtæki. Enda þótt þessi mikli hagnaður sé ekki á kostnað Seðlabankans er hann að miklu leyti í boði hans. Skuldsett heimili borga.

Ásgeir Jónsson á umræddum fundi hjá efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis í gær.

Seðlabankinn hefur aðallega kennt launahækkunum um verðbólgu undanfarinna missera og ára. Þegar eitt af stærstu dagvörufyrirtækjum landsins birti afkomutilkynningu sína á dögunum kom hins vegar í ljós að laun og launatengd gjöld höfðu sem hlutfall af veltu einungis hækkað um 0,4% á milli ára. Er það sennilegt að þessi aukni launakostnaður upp á 0,4% hafi valdið 5,8% hækkun matvöruverðs frá því í janúar 2025 til janúar í ár? Eða erum við einfaldlega að horfa á græðgisverðbólgu þeirra sem hafa völdin á dagvörumarkaði? Seðlabankinn hefur aldrei talað gegn eða sett neinar hömlur á dagvörufyrirtæki þrátt fyrir þessar miklu verðbólguvaldandi hækkanir á nauðsynjavörum sem endurspeglast svo í miklum hagnaði þeirra. Og aftur eru það heimilin sem borga kostnaðinn.

Á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar í gær ítrekaði seðlabankastjóri enn og aftur að það væri sameiginlegt verkefni okkar allra að ná niður verðbólgu. En á sama tíma og skuldsett heimili hafa neyðst til að draga saman seglin hefur Seðlabankinn sjálfur staðið fyrir stórfelldum framkvæmdum við eigið húsnæði þar sem kostnaður hefur farið töluvert fram úr áætlun. Fyrir ári var kostnaður bankans kominn yfir 3.000 millj. kr. Er það aðhald? Það hlýtur að felast ákveðin mótsögn í því að krefjast aðhalds hjá almenningi en standa á sama tíma í dýrum framkvæmdum þar sem ekkert hefur verið til sparað. Þegar hinir verst settu kveinka sér undan byrðunum er þeim mætt með hótunum um annað og verra. Það er aftur á móti sjaldan eða aldrei hallað orði á þá sem maka krókinn í verðbólgunni. Það er því miður ekki hægt að segja að Seðlabankinn hafi gengið á undan með góðu fordæmi með þessum dýru framkvæmdum sínum. Þetta er gamla sagan um það að það gildi annað um Jón eða séra Jón.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: