- Advertisement -

Að leggja niður ríkisútvarpið

Stjórnmál: Sigmunur Davíð Gunnlaugsson skrifaði eftirfarandi grein:

„Það hefur verið mjög áhugavert að fylgjast með umfjöllun um ungversk stjórnmál að undanförnu.

Forystumenn ESB, vinstrimenn, Ríkisútvarpið og aðrir réðu sér vart fyrir spenningi yfir því að nýr maður, beint af ESB þinginu með stuðningi ESB, væri við það að ná völdum í Ungverjalandi.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Eða eins og ég skrifaði á X í fyrradag:

„Það er líklega óhætt að segja að Ríkisútvarpið hafi aldrei verið eins spennt fyrir sigri hægriflokks og sigri Tisza flokks Péters Magyar (ísl: Péturs Ungverja), fyrrum flokksfélaga Viktors Orbán, í ungversku þingkosningunum.

Í fyrradag hófust sjónvarpsfréttirnar á langri frétt um kosningarnar og beinni útsendingu frá Ungverjalandi. Daginn eftir kosningar voru þær aftur fyrsta frétt og umfjöllun lauk ekki fyrr en um 10 mínútur voru liðnar af 25 min. fréttatíma.

Sjáum hvað gerist í kvöld. Ætli það verði umfjöllun um gagnrýni Magyars á Orbán fyrir linkind í innflytjendamálum og að vanrækja hagsmuni fólks af ungverskum uppruna í nágrannalöndunum?”

Á þeim skamma tíma sem liðinn er frá sigri Péturs hefur hann m.a. hafnað alfarið hælisleitendapakka ESB (sem ríkisstjórn Íslands vill innleiða!), sagst ætla að herða landamæraeftirlit, stöðva aðstreymi vinnuafls utan EES, lofað að tryggja hag fólks af ungverskum uppruna, hafnað megninu af kröfum ESB og sagst ætla að leggja niður ríkisútvarpið.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: