
Efnhagurinn: Stefán Ólafsson birti fyrir stundu þessa grein og graf með. Hver er mesta meinsemdin? Leiguokrið:
Leigumarkaðurinn hefur verið stór þáttur í hinu háa verðbólgustigi hér á landi á síðustu árum.
Það sést á því að leiga hefur hækkað margfalt meira en almennt verðlag, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Leigan hefur hækkað um 201% á tímabilinu en verðlagsvísitalan um 73% og verðlagsvísitalan án húsnæðisliðarins um 46%.
Það eru ekki bara mánaðarlegar hækkanir, bæði á leigu til heimila og á atvinnuhúsnæði til fyrirtækja, sem eru leiðandi í verðbólgu maskínunni. Heldur taka leigusalar oft stökk uppávið í árlegum hækkunum og við upphaf og endurnýjun leigusamninga.
Þessu þarf að taka hraustlega á til að hægja almennt á verðbólgunni.