Stjórnmál: Gauti B. Eggertsson skrifaði:

„Þetta hlýtur að vera einhver furðulegasta frétt sem ég hef lesið. Ólafur Ragnar er alveg brjálaður, hreinlega gáttaður, yfir því að Financial Times segir ESB tilbúið að veita Íslandi undanþágu er varðar stjórn eigin fiskimiða vegna þess að… enginn sem ÓRG þekkir hafi sagt þetta við hann. Sumsé, ESB gleymdi að láta hann vita.
Svo sé ég að sjávarútvegsstjóri ESB talar einmitt um að það sé á borðinu að veita Íslandi undanþágu. Ég held að Costas Kadis, sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins, sé betri heimild fyrir því hvað telst raunhæft í viðræðum við Ísland en Ólafur Ragnar er um það hvað hann heldur að Costas Kadis muni leggja fram við samningaborðið þegar kemur að sjávarútvegsmálum.
…í hartnær sjö áratugi?
Annars er umhugsunarefni hatrið hjá ÓRG gagnvart ESB. Honum leið alltaf betur í Kína, Rússlandi og Miðausturlöndum. Ég er með kenningu: Í Evrópu vissu allir að forseti skiptir engu máli í stjórnskipulagi Íslands og voru því ekki að eyða miklu púðri í opinberar heimsóknir forseta sem hafði engin völd. Fólk á fjarlægari slóðum var ekki alveg með þetta á hreinu.“
Egill Helgason brást við skrifum: „Mér finnst eiginlega frekar óviðeigandi að fyrrverandi forseti skuli ganga svona langt í pólitískri baráttu. Og svo er þetta líka furðulegur málflutningur. En er ekki bara ÓRG að setja sig í stellingar að verða leiðtogi baráttunnar gegn ESB.
Þetta verður svo einhvers konar met – í framlínu stjórnmálanna í hartnær sjö áratugi? Maður spyr sig þá hvort ekki eigi að láta yngra fólk um þetta?“