Enginn raunverulegur skilningur, ekkert samráð, bara ákvörðun tekin og við sitjum uppi með afleiðingarnar.
Gerður Björk Sveinsdóttir.
Samgöngur: Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar er afar ósátt við að flóabáturinn Baldur hafi verið tekinn úr siglingum yfir Breiðafjörð og settur í siglingar milli Heimaeyjar og Þorlákshafnar. Verið sé að færa vandann til. Hér er grein sem Gerður Björk skrifaði:
„Að taka Baldur úr siglingum yfir Breiðafjörður aftur og aftur eins og hann skipti engu máli er algjörlega óásættanlegt. Ég hef fulla samúð með þeirri stöðu sem uppi er vegna samgangna til Vestmannaeyja en Baldur er ekki lausnin við því.
Atvinnulíf og fólk hér á svæðinu treystir á Baldur.
Vegir eru illa viðhaldnir, holóttir og víða stórhættulegir. Sérstaklega núna, þegar þeir eru að koma undan vetri, eru þeir eins viðkvæmir og þeir verða.
Það er verið að færa allan þungann yfir á vegi þar á meðal malarvegi sem eru ekki eru byggðir fyrir þetta, ekki í þessu ástandi og alls ekki á þessum árstíma. Þetta bitnar á öryggi fólks, á rekstri fyrirtækja og á lífsgæðum þeirra sem búa hér.
Það sem fer kannski mest í taugarnar á manni er þetta endalausa skeytingarleysi. Enginn raunverulegur skilningur, ekkert samráð, bara ákvörðun tekin og við sitjum uppi með afleiðingarnar.
Ef menn ætla að tala um jafnræði í samgöngum þá byrja þeir ekki á því að taka eina mikilvægustu tengingu svæðisins úr sambandi þegar verst stendur á.
Þetta er svo langt frá því að vera í lagi.“