Stjórnmál: Atli Þór Fanndal horfði á Kastljósið fyrr í kvöld:
„Ánægður með Þorgerði Katrínu í Kastljósinu. Það er nefnilega bara ein spurning sem allir flokkar þurfa að svara. Munu þeir virða niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu. Fulltrúi Miðflokkssins gat ekki svarað því játandi.
Ég hef nefnilega lengi beðið og ítrekað tuðað yfir því að fjölmiðlar verða að hamra á þessu við alla flokka; er það stefna flokksins að atkvæðagreiðsla þar sem almenningur er kallaður til sé eitthvað sem þeir ætli að virða. Sagan segir okkur nefnilega að fullt af fólki fer í stjórnmál og nennir ekki einu sinni að spá í eigin heilindum. Hvað þá heilindum lýðræðiskerfisins.
Það er nefnilega ekkert að ræða fyrr en þetta er komið á hreint. Erum við með stjórnmálamenn sem skilja grundvallar heilindi.
Henni er ekki treystandi.
Það er nefnilega miklu stærra mál hvort flokkar standa með heilindum lýðræðiskerfisins en hvað þeim finnst um einstaka málefni. Annað er spurning hvort flokkarnir séu hluti af hinu lýðræðislega kerfi en hitt er hvað þeim finnst um einstaka mál.
Allsherjar atkvæðagreiðslur um allan heim nánast eru ‘ráðgefandi’ enda normið að þingið sé löggjafinn en ekki undantekningin.
Aftur spurningin er einföld. Er það stefna flokksins að hann skuli virða niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar. Smábörn geta skilið þetta. Það er engum greiði gerður með því að sleppa íslenskum stjórnmálum ítrekað við að svara einföldu prinsipmáli. Skiptir ykkur máli að lúta niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðsla meira að segja þegar almenningur kýs eitthvað sem þið ekki fílið.
Sigríður Andersen svaraði þessu ekki í Kastljósinu. Henni er ekki treystandi til að virða niðurstöður í þjóðaratkvæði ef almenningur kýs ekki rétt.“