- Advertisement -

Á að sameina Samfylkingu og Viðreisn?

Hrafn Magnússon skrifaði:

„Er ekki bara kominn tími til að sameina Viðreisn og Samfylkinguna í einn stjórnmálaflokk? Mėr finnst stefna þessara flokka vera eins í öllum meginatriðum. Forystumenn þessara flokka tala a.m.k. einum rómi í öllum málum. Getur einhver vís maður fundið meinbug við slíka sameiningu?“

Helgi Björnsson: jöklafræðingur skrifaði athugasemd:

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Hvorugur flokkurinn hefur skilning á umhverfismálum, sem eru þó mikilvægustu mál mannkyns og alls sem lifir á plánetunni. Báðir nærsýni og tækifærissinnaðir. Þó má segja margt gott um þá.“

Ragnar Önundarson viðskiptafræðingur:

„Með stofnun Viðreisnar fluttu margir Sjálfstæðismenn sig þangað. Þeir munu seint vilja sameinast til vinstri.“

Hrafn Magnússon skrifaði aftur:

„Gervigreindin segir að Viðreisn sé miðjuflokkur og Samfylkingin miðjuflokkur til vinstri. Má vera að þessi skilgreining sé rétt, þó svo að ekki beri mikið á vinstri armi Samfylkingarinnar, hvorki í utanríkismálum eða umhverfismálum.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: